2.2.2010 | 12:47
sama vitleysan
Er þetta nefndarfólk á launum, veit það einhver? Ef svo er þá er þarna kjörið tækifæri til að spara. Afhverju er foreldrum ekki bara treyst fyrir því að skíra barnið sitt?
Og hver er munurinn á ritreglum, Adrian og Jannika?
Ég held að það sé kominn tími til að leggja þessa blessuðu nefnd niður.
Adrían - ekki Adrian | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 283
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Algjör della og þetta fólk er að mínu mati vitleysingar sem vinna þarna.
Smá af löglegum nöfnum sem passa betur en Adrían:
Alice
Atalía
Bil
Bláey
Bjarma(hljómar eins og nafn á rollu, afsakið)
Christine
Charlotta(C, bíddu er C almennt notað á Íslandi?)
Gæflaug(er þetta grín?)
Hidegard
Júdea
Ljótunn(hvað er málið? Fáránlegt að þetta sé leyft)
Louise(er þetta ekki hreint erlent nafn?)
Marie( nú eða þetta)
Sophia
Þetta er nú bara brot af þeim kvennmansnöfnum sem leyfð eru.
Nokkur karlanöfn:
Christian
Dónald( jahá)
Dómaldi
Dufgus(nafn á fossi þá?)
Dufþakur
Eilífur
Friður(Já, hann heitir Eilífur Friður. bwahaha)
Funi
Ljúfur
Safír
Æi ég nenni þessu ekki, gæti eytt öllum deginum í þetta.
Mörgum finnst mitt nafn kannski fáránlegt en þessi nöfn sem ég tel að ofan ásamt mörgum öðrum finnst mér hreint út sagt fáránleg og mér finnst mannanafnanefnd vera skipuð vitleysingum.
Júlíus (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 13:56
Gleymdi að segja, hvað með öll Z nöfnin? Var ekki Z feld úr íslenskri tungu en samt má nota það í nöfnum. Er það ekki örlítið kjánalegt?
Júlíus (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 13:57
Smá misskilningur hjá Júlíusi; Adrían var leyft, en Adrian ekki
Christian Dónaldi Dufgus (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.