af hverju

Af hverju ætli Wenger hafi ekki reynt að fá hann þennan, kostar ekki neitt, er stór og sterkur, er ekki nema 27 ára og  getur tuddast inní teig, sem mínir menn sýndu um síðustu helgi að þeir geta ekki.

Er viss um að Wenger gæti komið honum á rétta braut í fótboltanum.

 


mbl.is West Ham fær Mido lánaðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sama vitleysan

Er þetta nefndarfólk á launum, veit það einhver? Ef svo er þá er þarna kjörið tækifæri til að spara. Afhverju er foreldrum ekki bara treyst fyrir því að skíra barnið sitt?

Og hver er munurinn á ritreglum,  Adrian og Jannika?

Ég held að það sé kominn tími til að leggja þessa blessuðu nefnd niður.

 


mbl.is Adrían - ekki Adrian
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alex er ekki eilífur

Þýðir þetta að þeir þora ekki að selja hann fyrr er sir Alex hættir? Það hlýtur að vera freistandi að selja kvikindið samt núna í þessu formi sem hann er í núna, hvað ætli verðmiðinn yrði hár, þori ekki að giska á það.
mbl.is Rooney verður aldrei seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir

Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir liðið, hann er búinn að sýna það í síðustu leikjum að hann er fantagóður miðjumaður og mjög mikilvægur fyrir liðið.

Eftir síðustu úrslit fer maður bara að verða bjartsýnn þrátt fyrir að Sir Alex sé búinn að afskrifa alla nema sjálfan sig og Chel$ki, ég held að við eigum eftir að vera við toppinn alveg fram á vor og hver veit með smá heppni gætum við nallar fagnað langþráðum titli í vor.

Gleðilegt ár og áfram Arsenal.


mbl.is Diaby gerir nýjan samning við Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ellismellur

Ja hérna hér, nú er það ljóst, ég er orðinn gamall............
mbl.is Nena orðin amma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fyrirliðinn knái

Þessir Spánverjar skilja greinilega ekki orðið "nei" og "hann er ekki til sölu". Þessi saga er farin að minna á söguna endalausu og leiðinlegu um Ronaldo og R.Madrid, nema að Fabregas hefur ítrekað sagt að hann vilji vera áfram á Emirates a.m.k. í bili.

Ég held að það sé betra fyrir hann einsog staðan er núna að vera áfram á Emirates og vera þar aðalmaðurinn heldur en að þurfa að berjast um stöður við menn einsog Xavi og Iniesta. Menn sem eru allstaðar í efstu sætum í kjöri bestu leikmanna heims.

En fótboltapólitíkin á Spáni er skrítin og þar láta menn ekkert stoppa sig og á meðan verða æðstu menn Arsenal að láta þetta yfir sig ganga og reyna að svara þessum vitleysingum sem minnst.


mbl.is Búinn að fá nóg af Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leeds lykt

Það er komin Leeds lykt af þessu Liverpool liði, búið að eyða fullt af peningum í slaka leikmenn, sitja uppi með vanhæfan stjóra á alltof löngum samningi og skuldir hrannast upp, liðið búið að missa af miklum Meistaradeildartekjum og missir sennilega alveg af þeim tekjum á næsta ári.

Getur þetta endað með öðru en ósköpum?


mbl.is Benítez: Sjálfstraustið er lítið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

snillingur

Ég er einn af þeim stuðningsmönnum sem er mjög ánægður með Rússann, þó ég elski hann kannski ekki, þá eru þetta ein af mörgum snilldarkaupum hjá Wenger og bráðsnjallt að leyfa svona galdramönnum að leika dáldið lausum hala á vellinum líkt og Bergkamp fékk að gera á sínum tíma. Þetta er maður sem á eftir að leika stórt hlutverk í titilbaráttunni i vor sem ég er að verða bjartsýnni og bjartsýnni á að liðið eigi eftir að taka þátt í.

Gleðileg jól og áfram Arsenal


mbl.is Elska mig meira en eiginkonan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benites frábær

Já hann er bara að hugsa um að reyna að vinna næsta leik, vonum að þeir fari að vinna einsog 1-2 leiki svo hann verði ekki rekinn, gott að hafa hann þarna.
mbl.is Benítez stefnir á að vinna næsta leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

meiðslahrúga

hvað er eiginlega að þessum dreng, hann má ekki koma nálægt fótboltavelli þá tognar hann, gefa honum lýsi, einsog skot
mbl.is Walcott ekki með um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Björgvin Ólafur Gunnarsson
Björgvin Ólafur Gunnarsson
Er stuðningsmaður Arsenal og áhugamaður um fótbolta og ýmislegt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband